Viðhald fasteigna og bygging húsnæðis

K16 sérhæfir sig í umfangsmiklu viðhaldi fasteigna og nýbyggingum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, gæði og öryggi í öllum verkum.

Viðhaldsverkefni

Áratuga reynsla í viðhaldsverkefnum

Undanfarin 20 ár hefur K16 sinnt stórum og krefjandi viðhaldsverkefnum fyrir opinbera aðila, sveitarfélög, húsfélög og aðra fagaðila í fasteignarekstri.

Nýframkvæmdir

Nýbyggingar, frá grunni
að góðum frágangi

K16 tekur að sér alhliða verktöku við nýbyggingu atvinnu-, íþrótta, skóla- og íbúðarhúsnæðis. Við fylgjum verkinu í gegnum allt ferlið — hönnun, skipulagningu, framkvæmd, eftirlit og afhendingu.

Eigin framkvæmdir

Íbúðaverkefni og fasteignaþróun

K16 hefur mikla reynslu í þróun eigin verkefna; m.a. byggingu íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Við sjáum um allt ferlið; kaup á lóð, vinnslu skipulagsmála og allt framkvæmdarferlið til afhendingar á tilbúnu húsnæði með lykli í hönd kaupanda.