FÓLKIÐ OKKAR
Við byggjum á reynslunni
Hjá K16 starfar fjölbreytt og öflugt teymi með menntun og reynslu sem tryggir gæði vinnu okkar fyrir viðskiptavini félagsins. Við vitum að góð niðurstaða í hverju verki byggir á reynslu fólksins okkar og hæfileikum þess til að leysa krefjandi áskoranir.
Nasim Mohseni
Starfsmaður
Framúrskarandi fyrirtæki
K16 hefur verið í hópi framúrskarandi fyrirtækja á lista Creditinfo.
Aðeins um 2% fyrirtækja sem skráð eru í hlutafélagaskrá komast að jafnaði á lista Creditinfo. K16 er eitt þeirra fyrirtækja sem um árabil hafa verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla.
Fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækið Creditinfo vinnur árlega ítarlega greiningu á fyrirtækjum skráðum á Íslandi og gefur út lista yfir frammúrskarandi fyrirtæki ársins. Einungis þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, að teknu tilliti til þátta sem varða rekstur þeirra og stöðu, komast á listann.
Svansvottun
Svansvottun er opinbera umhverfismerki Norðurlandanna og einn besti formlegi gæðastimpill bygginga sem til er á Íslandi.
Svansvottun stuðlar að minni umhverfisáhrifum, eykur gæði húsnæðisins og heilnæmi þess fyrir íbúa og notendur.
K16 hefur reynslu af Svansvottun opinberra bygginga og óskar eftir samstarfi við verkkaupa og þróunaraðila sem hyggja á Svansvottun sinna verkefna.
Umhverfisstofnun er umsjónaraðili Svansins á Íslandi og sér um eftirlit, yfirferð gagna og gefa út vottun fyrir byggingar þegar sýnt hefur verið fram á að öll skilyrði hafi verið uppfyllt.