Smyril Line – Vöruhús og skrifstofur, Þorlákshöfn

Staðsetning

Þorlákshöfn

Ár

2024 - 2026

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Smyril line

Staða

Verklok 2026

K16 byggði nýtt vöru- og þjónustuhús fyrir Smyril Line við Hafnarskeið 16 í Þorlákshöfn. Aðalbyggingin er um 2.798 m² og hýsir vöruhús, skrifstofur, starfsmannaaðstöðu og önnur stoðrými fyrir starfsemi félagsins. Við húsið var jafnframt reist um 81 m² sambyggt tollhús.

K16 var aðalverktaki og annaðist framkvæmd hússins, þar á meðal uppsteypu, stálvirki, þak, yleiningar, glugga og hurðir. Um er að ræða umfangsmikið iðnaðarhús, en í byggingarnar fóru um 190 tonn af stáli og um 775 m³ af steinsteypu. Yleiningar á út- og innveggi voru samtals um 2.680 m².

Helstu upplýsingar:

Stærð aðalbyggingar: 2.798 m²
Stærð tollhúss: um 81 m²
Stálvirki: um 190 tonn
Steinsteypa í byggingar og bílaplan: um 1.152 m³
Yleiningar á út- og innveggi: um 2.680 m²
Þakflötur: um 2.900 m²