K16 annaðist umfangsmikla endurgerð leikskólans Garðaborgar við Bústaðaveg 81 í Reykjavík. Um er að ræða 380 m² staðsteypta byggingu frá árinu 1982, en leikskólinn tók til starfa árið 1983.
Verkið fólst í niðurrifi innanhúss og á þakvirki, endurgerð þaks og fullnaðarfrágangi byggingarinnar innan- og utanhúss. Upprunalegir steyptir burðarveggir voru nýttir áfram, en útveggir voru einangraðir og klæddir og gluggar og hurðir endurnýjuð. Innanhúss voru meðal annars byggðir nýir innveggir og komið fyrir loftaklæðningum, innréttingum og nýjum tæknikerfum. K16 annaðist einnig endurgerð og frágang lóðar.
K16 var aðalverktaki og annaðist alla framkvæmd verksins. Endurgerðin var unnin í Svansvottunarferli og lauk framkvæmdum árið 2025.
Helstu upplýsingar:
Stærð byggingar: 380 m²
Hönnuður: Arkþing Nordic
Umhverfisvottun: Svansvottunarferli





