Kleppsvegur 136-140

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2023

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Kleppsvegur 136–140 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús sem byggt var árið 1966. Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni byggingartæknifræðingi, sem hannaði fjölda fjölbýlishúsa á Íslandi. Hönnun hússins einkennist af einföldum formum, hagkvæmu skipulagi og skýrum steinsteyptum byggingarstíl sem var algengur á sjöunda áratugnum.

Verkið fólst í umfangsmiklu utanhússviðgerðum á fjölbýlishúsinu. Helstu verkþættir voru  endurnýjun glugga og hurða, viðgerðum á útveggjum, endurnýjun stálhandriða, múrviðgerðum og málun. Boðnar voru tvær framkvæmdarleiðir; annars vegar álklæðning á bakhlið hússins og hins vegar almennar múrviðgerðir og málun.

Helstu magntölur:

  • Endurnýjun glugga: 162 stk.
  • Ný álklæðning: 670 m2
  • Háþrýstiþvottur útveggja: 960 m2.
  • Málun: 1100 m2
  • Endurnýjun stálhandriða á svölum og við kjallaratröppur