Verkið fólst í umfangsmiklum utanhússviðgerðum á 8–9 hæða fjölbýlishúsi við Gaukshóla 2. Helstu verkþættir voru endurnýjun glugga, múr- og steypuviðgerðir, viðgerðir á svölum og handriðum, þakviðgerðir, málun útveggja og glugga.
Helstu magntölur:
- Endurnýjun glugga: 140 stk
- Endurmálun veggja og lofta: 3.101 m²
- Endurmálun glugga: 2.246 m
- Tvöfalt lag af asfaltpappa á þaksvalir: 100 m²
Þetta var umfangsmikið viðhaldsverkefni með áherslu á endurnýjun glugga, yfirborðsviðgerðir steypu og endurbætur á ytra byrði hússins.
