Fornhagi 11–17 er steinsteypt fjölbýlishús í Vesturbæ Reykjavíkur, byggt árið 1957. Húsið var teiknað af Ágústi Steingrímssyni, byggingafræðingi, en upprunalegar teikningar eru frá árinu 1954. Byggingin var reist af Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna ríkisstofnana
Verkið fólst í umfangsmiklum utanhússviðgerðum á fjölbýlishúsinu. Helstu verkþættir voru endurnýjun glugga, endurnýjun þakjárns, múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, endursteining útveggja, málun glugga og þaks ásamt uppsetningu vinnupalla og vinnuaðstöðu.
Helstu magntölur:
- Endurmálun þakjárns: 216 m²
- Endurnýjun glugga: 126 stk
- Endurnýjun þakjárns: 680 m²
- Háþrýstiþvottur útveggja: 2.595 m²
- Endursteining útveggja: 795 m²
- Endurmálun gluggakarma: 1.692 m²
- Endurmálun þakjárns: 216m²


