Rauðarárstígur 5–9 er steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús sem byggt var árið 1945. Húsið er dæmigert fyrir steinsteypta íbúðabyggð frá miðjum fjórða áratug síðustu aldar og er með steinsteyptum útveggjum sem eru steinaðir að utan. Gluggar eru ísteyptir timburgluggar og þak er hefðbundið hallandi þak.
Framkvæmdin fólst í umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaverkum á ytra byrði hússins. Verkið fól meðal annars í sér endurnýjun timburglugga, endurnýjun niðurfallsröra, múrviðgerðir og jöfnun útveggja, endursteiningu útveggja og sílanböðun.
Helstu magntölur:
- Uppsetning vinnupalla og öll nauðsynleg aðstaða..
- Endurnýjun glugga: 45 stk.
- Endurnýjun niðurfallsröra: 65 lm
- Jöfnunarlag undir steiningu: 220 m²
- Endursteining útveggja: 654 m²
- Sílanböðun útveggja: 654 m²

