K16 annaðist endurreisn og umfangsmiklar breytingar á atvinnuhúsi við Íshellu 1 í Hafnarfirði. Um er að ræða þýskt límtréhús sem áður hafði staðið á Rifi á Snæfellsnesi. Húsið var tekið niður, flutt til Hafnarfjarðar og reist þar að nýju með verulegum breytingum.
K16 sá um jarðvinnu, nýjar undirstöður og botnplötu, endurreisn límtrésburðarvirkisins og frágang þaks og útveggja. Húsinu var skipt niður í misstór iðnaðar- og lagerrými með um 3.300 m² af innveggjum og komið fyrir gluggum, gönguhurðum og 28 iðnaðarhurðum. Verkið náði einnig til raf- og pípulagna, sprinklerkerfis, málunar og lóðarfrágangs.
Grunnflötur hússins er um 7.330 m² og heildarstærð þess, að meðtöldum skrifstofurýmum og millilofti, um 7.580 m². Miðhluti hússins er um 2.500 m² með allt að 10 metra lofthæð.
Helstu upplýsingar:
- Grunnflötur byggingar: um 7.330 m²
- Heildarstærð byggingar: um 7.580 m²
- Lóðarstærð: um 16.120 m²
- Steinsteypa: um 1.565 m³
- Bendistál: um 64 tonn
- Innveggir: um 3.300 m²
- Burðarvirki: Límtré og steinsteypa
- Hlutverk K16: Niðurtaka, flutningur, endurreisn og fullnaðarframkvæmd
- Framkvæmdatími: 2018–2019


