K16 byggði nýtt lager- og skrifstofuhús við Suðurhraun 10 í Garðabæ. Um er að ræða um 7.130 m² stálgrindarhús á tveimur hæðum, með rúmgóðu lagerhúsnæði á fyrstu hæð og skrifstofum á annarri hæð.
K16 annaðist fullnaðarframkvæmd verksins, þar á meðal jarðvinnu, undirstöður og botnplötur, uppsetningu stálgrindar, þak- og veggklæðningar, tæknikerfi og frágang innan- og utanhúss. Húsið er klætt samlokueiningum og byggt fyrir umfangsmikla lager- og skrifstofustarfsemi.
Helstu upplýsingar:
Heildarstærð byggingar: um 7.130 m²
Stærð lagerhúsnæðis: um 4.864 m²
Stærð skrifstofuhúsnæðis: um 2.127 m²
Fjöldi hæða: 2
Lóðarstærð: um 11.950 m²
Steinsteypa: um 1.460 m³
Stálvirki og bendistál: um 268 tonn
Burðarvirki: Stálgrind og steinsteypa


