K16 hafði umsjón með umfangsmikilli stækkun framleiðsluaðstöðu Algalífs á Ásbrú í Reykjanesbæ. Framkvæmdin náði til tveggja nýbygginga, um 3.700 m² framleiðslu- og stjórnsýsluhúss og um 3.300 m² gróðurhúss, samtals um 7.000 m².
K16 annaðist framkvæmdastjórn og samhæfingu verksins, ásamt móta-, járna- og steypuvinnu við undirstöður, sökkla, botnplötur og neðanjarðarlagnaganga. K16 hafði jafnframt umsjón með reisingu stálgrindar og utanhússfrágangi framleiðslu- og stjórnsýsluhússins.
Helstu upplýsingar:
- Fjöldi bygginga: 2
- Stærð framleiðslu- og stjórnsýsluhúss: um 3.700 m²
- Stærð gróðurhúss: um 3.300 m²
- Heildarstærð bygginga: um 7.000 m²
- Steinsteypa: um 924 m³
- Bendistál: um 55 tonn
- Stálvirki framleiðsluhúss: um 240 tonn
- Þak- og veggklæðningar framleiðsluhúss: um 7.000 m²
- Hlutverk K16: Framkvæmdastjórn, uppsteypa, reising og utanhússfrágangur

