Krókháls 7A – Skrifstofu- og þjónustubygging

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2029

hlutverk

Eigið verk

Verkkaupi

-

Staða

Í undirbúningi

K16 vinnur að þróun nýs skrifstofu- og þjónustuhúss við Krókháls 7A í Reykjavík. Gert er ráð fyrir allt að 5.026 m² byggingu á fjórum hæðum, með sveigjanlegum þjónusturýmum á jarðhæð og skrifstofum á efri hæðum.

Hönnunin nýtir mikinn hæðarmun lóðarinnar og fellir bygginguna að landinu. Húsið er brotið upp í þrjá meginhluta og inndregin efsta hæð skapar rými fyrir svalir og þakgarða. Á vesturenda verður einnar hæðar stoðrými fyrir hjólageymslu, sorp- og tæknirými, fellt inn í landið með gróðurþaki.

Áhersla er lögð á vandað og grænt yfirbragð með gróðurþökum, þakgörðum, gróðurbeðum og gegndræpum yfirborðum á lóð. Frumdrög gera ráð fyrir 103 bílastæðum og góðri aðstöðu fyrir hjól.

Helstu upplýsingar:

  • Lóðarstærð: 5.955 m²
  • Hámarksbyggingarmagn: 5.360 m²
  • Fjöldi hæða: 4
  • Bílastæði samkvæmt frumdrögum: 103
  • Fyrirhuguð notkun: Skrifstofur og þjónusta
  • Hlutverk K16: Þróun og fyrirhuguð uppbygging
  • Arkitekt: ALARK arkitektar