Gullhella 2, Vöru- og þjónustuhús

Staðsetning

Hafnarfjörður

Ár

2025

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Stólpi Gámar

Staða

Lokið

K16 byggði nýtt vöru- og þjónustuhús fyrir Stólpa Gáma við Gullhellu 2 í Hafnarfirði. Byggingin er 1.542 m² og hýsir vörugeymslu, þjónusturými, skrifstofur og starfsmannaaðstöðu fyrir starfsemi fyrirtækisins.

K16 var aðalverktaki og annaðist fullnaðarframkvæmd hússins, þar á meðal jarðvinnu, uppsteypu, stálvirki, þak- og veggklæðningar, tæknikerfi og frágang innan- og utanhúss. Verkinu lauk í nóvember 2025.

Helstu upplýsingar:

  • Stærð byggingar: 1.542 m²
  • Steinsteypa: um 390 m³
  • Stálvirki: um 123 tonn
  • Burðarvirki: Stálgrind og steinsteypa