K16 annaðist umfangsmikla endurgerð leikskólans Hálsaborgar við Hálsasel 27 í Reykjavík. Um er að ræða 447 m² staðsteypta byggingu frá árinu 1980, en leikskólinn tók til starfa árið 1981.
Verkið fólst í niðurrifi innanhúss og á þakvirki, endurgerð þaks og fullnaðarfrágangi byggingarinnar innan- og utanhúss. Upprunalegir steyptir burðarveggir voru nýttir áfram, en útveggir voru einangraðir og klæddir og gluggar og hurðir endurnýjuð. Innanhúss voru meðal annars byggðir nýir innveggir og komið fyrir loftaklæðningum, innréttingum, gólfhita og nýjum tæknikerfum. K16 annaðist einnig endurgerð og frágang lóðar.
K16 var aðalverktaki og annaðist alla framkvæmd verksins, þar á meðal endurgerð og frágang lóðar. Við framkvæmdina voru notuð Svansvottuð efni eftir því sem við átti. Verkinu lauk árið 2025.
Helstu upplýsingar:
Stærð byggingar: 447 m²
Hönnuður: Arkþing Nordic







