UM OKKUR
Sagan
K16 var stofnað árið 2006 af Hannesi Þór Baldurssyni og byggir á áratuga reynslu hans í byggingariðnaði. Hannes hóf feril sinn snemma í faginu og öðlaðist á þeim tíma víðtæka reynslu af bæði framkvæmdum og rekstri, meðal annars sem meðeigandi að Spæni ehf., Þórsafli hf. og Viðhaldi fasteigna ehf., sem lagði grunn að þeirri starfsemi sem síðar varð K16 ehf.
K16 hefur frá upphafi byggt starfsemi sína á traustri reynslu, fagmennsku og metnaði í byggingariðnaði. Félagið hefur þróast úr öflugum viðhaldsverktaka í fjölbreytt byggingarfyrirtæki sem sinnir bæði nýframkvæmdum, endurbótum og eigin þróunarverkefnum. Með sterkri verkþekkingu og áreiðanlegri verkstjórn hefur K16 fest sig í sessi sem traustur samstarfsaðili á íslenskum byggingarmarkaði.
KJARNASTARFSEMI
Þrjár meginstoðir
Frá upphafi hefur viðhald verið kjarninn í starfseminni, en með tímanum hefur félagið þróast og í dag byggir K16 starfsemi sína á þremur meginsviðum: viðhaldi og endurbótum, nýframkvæmdum og eigin þróunarverkefnum. Sú breidd gerir félaginu kleift að takast á við fjölbreytt verkefni og skapa verðmæti á öllum stigum byggingarferlisins.
Meðal viðhalds- og endurbótaverkefna sem K16 hefur komið að eru verkefni við Hús verslunarinnar, Menntaskólann á Laugarvatni, Steingrímsstöð, auk mikils fjölda verkefna á höfuðborgarsvæðinu og verkefna á landsbyggðinni. Þessi verkefni hafa krafist nákvæmni, sveigjanleika og góðrar verkstjórnunar þar sem oft er unnið við krefjandi aðstæður, m.a. vegna veðurs eða þegar unnið er í háhýsum.
Samhliða viðhaldsverkefnum tók K16 að sér smærri nýbyggingarverkefni á fyrstu árum, svo sem sumarhús og einbýlishús, og síðar par- og raðhús. Með þeim verkefnum byggði félagið upp mikilvæga verkþekkingu og getu til að takast á við fjölbreyttari og stærri verkefni.
TÍMAMÓT 2016
Stálgrindarhús og nýbyggingar
Árið 2016 markaði tímamót í þróun félagsins þegar Hannes, eigandi K16, varð annar af stofnendum Eignabyggðar. Í kjölfarið fór K16 inn í stærri og metnaðarfyllri verkefni en áður. Þar má fyrst nefna 7.200 fermetra stálgrindarhús sem var flutt frá Rifi á Snæfellsnesi að Íshellu í Hafnarfirði og sett þar upp aftur í nokkuð breyttri mynd. Þá byggði félagið einnig um 7.100 fermetra nýtt stálgrindarhús við Suðurhraun í Hafnarfirði. Þessi verkefni voru umfangsmikil og kröfðust mikillar samhæfingar, og urðu mikilvægur áfangi í vexti félagsins.
Í framhaldi af þessu tók K16 þátt í uppbyggingu fjölda stálgrindarhúsa á atvinnusvæðum, meðal annars við Borgarhellu, Einhellu og Móhellu. Þá hafði félagið einnig yfirumsjón með smíði tveggja áfanga verksmiðjuhúsnæðis fyrir Vaxa Life á Hellisheiði, samtals um 7.700 fermetrum, þar sem félagið leiddi umfangsmikið og tæknilega krefjandi verkefni.
Leiðir K16 og Eignabyggðar skildu árið 2024 en þessi ár voru mikilvæg fyrir þróun og vöxt beggja félaga. Í kjölfarið hefur K16 haldið áfram að byggja á þeirri reynslu sem safnaðist á þeim tíma.
Á síðustu árum hefur K16 komið að byggingu fjölda stálgrindarhúsa og annarra atvinnumannvirkja, þar á meðal fyrir Stólpa gáma á Gullhellu, Smyril Line í Þorlákshöfn, ÁTVR á Stuðlahálsi og N1 á Akranesi. Þá er félagið nú með í framkvæmd byggingu íþróttahúss fyrir Hvalfjarðarsveit, auk 44 íbúða þróunarverkefnis í Njarðvík sem áætlað er að ljúki vorið 2026.
UNNIÐ EFTIR GÆÐAKERFUM
Svansvottun og ISO 9001:2015
K16 hefur byggt upp umtalsverða sérstöðu á sviði Svansvottaðra bygginga og enduruppbyggingar leikskóla. Árið 2025 afhenti félagið leikskólana Garðaborg og Hálsaborg eftir umfangsmiklar Svansvottaðar endurbætur. Árið 2026 er unnið að verkefnum við þrjá leikskóla, Árborg og Hlíð/Sunnuhlíð, auk alvertöku á nýbyggingu 2.200 fermetra leikskóla við Fossvogsblett sem verður einn stærsti leikskóli landsins.
K16 er um þessar mundir að innleiða gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 staðlinum, sem er liður í því að efla gæði, samræma verkferla og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins.
Traustur samstarfsaðili
Áreiðanleiki og fagmennska
Í gegnum árin hefur K16 byggt upp orðspor fyrir áreiðanleika, fagmennsku og góða verkstjórn. Styrkur félagsins liggur í mannauði sem býr yfir mikilli reynslu, skilvirkum vinnubrögðum og getu til að takast á við fjölbreytt verkefni, allt frá viðhaldi og endurbótum upp í stór og tæknilega krefjandi mannvirki. Höfuðstöðvar K16 eru við Dragháls 4 í Reykjavík, auk þess sem félagið hefur rúmgóða aðstöðu í Reykjanesbæ fyrir lager og verkstæði.
K16 leggur ríka áherslu á gott samstarf, skýra verkstjórn og að verkefni gangi samkvæmt áætlun. Með sterkan grunn og skýra sýn til framtíðar er félagið vel í stakk búið til að vaxa áfram og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á komandi árum.