Hreinsistöð í Þorlákshöfn

Staðsetning

Þorlákshöfn

Ár

2026

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Sveitarfélagið Ölfus

Staða

Í vinnslu

K16 byggir nýja hreinsistöð fyrir Sveitarfélagið Ölfus við Hafnarbakka 10 í Þorlákshöfn. Um er að ræða um 65 m² steinsteypta byggingu á einni hæð með einhalla timburþaki. (Myndir væntanlegar)

K16 er aðalverktaki og annast alla helstu verkþætti framkvæmdarinnar, þar á meðal jarðvinnu, uppsteypu, lagnir, raflagnir, loftræsingu, hitakerfi og frágang innan- og utanhúss. Verkið nær einnig til útrásarbrunns og undirbúnings fyrir uppsetningu hreinsibúnaðar.

Helstu upplýsingar:

Stærð byggingar: um 65 m²
Fjöldi hæða: 1
Burðarvirki: Steinsteypa
Þakgerð: Einhalla timburþak