Íþróttahúsið Heiðarborg, Hvalfjarðarsveit

Staðsetning

Hvalfjarðarsveit

Ár

2024 - 2026

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Hvalfjarðarsveit

Staða

Verklok 2026

K16 annast byggingu nýs íþróttahúss við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit og umfangsmiklar breytingar á tengdum mannvirkjum. Nýbyggingin tengist núverandi íþrótta- og sundaðstöðu og styrkir Heiðarborg sem miðstöð skóla-, íþrótta- og félagsstarfs í sveitarfélaginu.

Verkið hefur verið unnið í fjórum áföngum. Fyrstu tveir áfangarnir náðu til uppbyggingar og fullnaðarfrágangs nýja íþróttahússins, þar á meðal burðarvirkis, lagna, innréttinga, íþróttabúnaðar og lóðarfrágangs.

Í þriðja áfanga var bætt við nýju sandsíu- og klórhúsi, lagnagangi og undirstöðum fyrir potta við sundlaugina. Fjórði áfanginn felur í sér heildarendurnýjun á 165 m² eldri íþróttasal, þar sem meðal annars er komið fyrir nýrri gólfplötu, íþróttagólfi, loftaklæðningu, lýsingu, lögnum og loftræsingu.

Helstu upplýsingar:

Fjöldi áfanga: 4
Stærð nýbyggingar: 1.874 m²
Stærð sandsíu- og klórhúss: 24 m²
Stærð endurnýjaðs salar: 165 m²
Burðarvirki nýbyggingar: Stálgrind og steinsteypa
Hönnuður: ASK arkitektar