K16 vinnur að þróun nýs skrifstofu- og þjónustuhúss við Krókháls 7A í Reykjavík. Gert er ráð fyrir allt að 5.026 m² byggingu á fjórum hæðum, með sveigjanlegum þjónusturýmum á jarðhæð og skrifstofum á efri hæðum.
Hönnunin nýtir mikinn hæðarmun lóðarinnar og fellir bygginguna að landinu. Húsið er brotið upp í þrjá meginhluta og inndregin efsta hæð skapar rými fyrir svalir og þakgarða. Á vesturenda verður einnar hæðar stoðrými fyrir hjólageymslu, sorp- og tæknirými, fellt inn í landið með gróðurþaki.
Áhersla er lögð á vandað og grænt yfirbragð með gróðurþökum, þakgörðum, gróðurbeðum og gegndræpum yfirborðum á lóð. Frumdrög gera ráð fyrir 103 bílastæðum og góðri aðstöðu fyrir hjól.
Helstu upplýsingar:
- Lóðarstærð: 5.955 m²
- Hámarksbyggingarmagn: 5.360 m²
- Fjöldi hæða: 4
- Bílastæði samkvæmt frumdrögum: 103
- Fyrirhuguð notkun: Skrifstofur og þjónusta
- Hlutverk K16: Þróun og fyrirhuguð uppbygging
- Arkitekt: ALARK arkitektar






