K16 byggði fjögur atvinnuhús við Móhellu 1–7 í Hafnarfirði. Byggingarnar eru samtals 3.424 m² og skiptast í 30 atvinnurými auk þvottastöðvar.
Um er að ræða stálgrindarhús sem voru hönnuð með áherslu á hagkvæm og sveigjanleg atvinnurými fyrir fjölbreytta starfsemi. K16 annaðist fullnaðarframkvæmd verksins, þar á meðal jarðvinnu, uppsteypu, uppsetningu stálgrindar, þak- og veggklæðningar, milliloft, glugga, hurðir, innréttingar og lóðarfrágang.
Helstu upplýsingar:
- Fjöldi bygginga: 4 / Atvinnurýma: 30
- Þvottastöðvar: 1
- Heildarstærð bygginga: 3.424 m²
- Stærð bygginga: 605–990 m²
- Stálvirki: um 260 tonn
- Steinsteypa: um 896 m³
- Þakklæðning: um 3.700 m²
- Samlokueiningar: um 4.900 m²
- Burðarvirki: Stálgrind og steinsteypa
- Hlutverk K16: Fullnaðarframkvæmd


