N1 – Þjónustu- og þvottastöð, Akranes

Staðsetning

Akranes

Ár

2025 - 2026

hlutverk

Uppsteypa, stálvirki o.fl.

Verkkaupi

Festi hf.

Staða

Verklok 2026

K16 annast framkvæmdir við nýja þjónustumiðstöð N1 við Elínarveg 3 á Akranesi. Verkefnið samanstendur af 1.526 m² þjónustustöð og um 446 m² þvottastöð, eða samtals um 1.972 m².

Verkhluti K16 felur í sér uppsteypu og botnplötur, smíði og uppsetningu stálvirkis, berandi stál-trapísu í þaki, veggklæðningar og samlokueiningar. K16 annast einnig uppsetningu glugga, rennihurða, gönguhurða og flóttahurða.

Helstu upplýsingar:

Fjöldi bygginga: 2
Stærð þjónustustöðvar: 1.526 m²
Stærð þvottastöðvar: um 446 m²
Heildarstærð bygginga: um 1.972 m²
Steinsteypa: um 678 m³
Stálvirki og festingar: um 90 tonn
Verkkaupi: Festi hf.
Hlutverk K16: Uppsteypa, stálvirki, klæðningar, gluggar og hurðir
Hönnuður: DAP arkitektar