Stúdentagarðar FÉSTA, Akureyri

Staðsetning

Akureyri

Ár

2026 - 2029

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

FÉSTA - Akureyri

Staða

Í vinnslu

K16 byggir nýja stúdentagarða fyrir FÉSTA, Félagsstofnun stúdenta á Akureyri, við Norðurslóð 3, 5 og 7, skammt frá Háskólanum á Akureyri. Húsin þrjú, Sólvellir, Þingvellir og Akurvellir, verða samtals um 6.700 m² og fjórar til fimm hæðir.

Alls verða 126 íbúðareiningar, þar af 64 einstaklingsherbergi og 62 litlar íbúðir, auk sameiginlegra rýma, geymslna og skrifstofu- og starfsaðstöðu FÉSTA. Á lóðinni verða 30 bílastæði, þar af fjögur fyrir hreyfihamlaða, og 167 hjólastæði í læstum og frostfríum hjólageymslum.

Verkið er í alverktöku K16 og nær meðal annars til aðstöðu og jarðvinnu, burðarvirkis, lagna, frágangs innan- og utanhúss og lóðarfrágangs. Burðarvirki húsanna verður úr járnbentri steinsteypu. Framkvæmdir hefjast sumarið 2026, Þingvellir verða teknir í notkun sumarið 2028 og verkinu á að vera að fullu lokið í júní 2029.

Nordic Office of Architecture annaðist arkitektahönnun og hönnunarstjórn verkefnisins og hlaut fyrstu verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni um stúdentagarðana árið 2024.

Helstu upplýsingar

Heildarstærð: um 6.700 m²
Stærð lóðar: 8.797 m²
Fjöldi bygginga: 3
Fjöldi hæða: 4–5
Fjöldi íbúðareininga: 126
Þar af einstaklingsherbergi: 64
Þar af íbúðir: 62
Bílastæði: 30 – Hjólastæði: 167
Burðarvirki: Járnbent steinsteypa
Verkkaupi: FÉSTA
Arkitekt: Nordic Office of Architecture