K16 byggði þriðja og fjórða áfanga uppbyggingar VAXA Life á Hellisheiði. Verkefnið samanstendur af 3.500 m² framleiðsluhúsi og 4.200 m² fjölnotahúsi, samtals um 7.700 m².
Í framleiðsluhúsinu fer fram hátæknivædd inniræktun örþörunga en fjölnotahúsið hýsir fjölbreytta starfsemi, s.s. skrifstofur og vatnshreinsistöð. Framkvæmdin kallaði á nána samhæfingu burðarvirkja, byggingarhluta og sérhæfðra tæknikerfa.
K16 var aðalverktaki og annaðist framkvæmdastjórn og samskipti við hönnuði. K16 hafði umsjón með uppsteypu húsanna, uppsetningu stálgrinda og frágangi þaka og klæðninga.
Helstu upplýsingar:
Fjöldi bygginga: 2
Áfangar K16: 3 og 4
Stærð framleiðsluhúss: 3.500 m²
Stærð fjölnotahúss: 4.200 m²
Heildarstærð bygginga: um 7.700 m²
Stálvirki: um 480 tonn
Járnbending: um 347 tonn
Steinsteypa: um 2.764 m³
Samlokueiningar á veggi og þök: um 7.770 m²
Holplötur og milliplötur: um 2.630 m²






