K16 annast umfangsmikla endurgerð leikskólans Árborgar við Hlaðbæ 17 í Reykjavík. Um er að ræða 474 m² staðsteypta byggingu frá árinu 1980.
Verkið felst meðal annars í niðurrifi hluta þakvirkis, endurgerð þaks og fullnaðarfrágangi byggingarinnar innan- og utanhúss. Upprunalegir steyptir burðarveggir eru nýttir áfram, en útveggir eru lagfærðir, einangraðir og klæddir og gluggar og hurðir endurnýjuð. Innanhúss er húsnæðið endurskipulagt með nýjum innveggjum, loftaklæðningum og innréttingum, auk endurnýjunar raflagna, lagna, gólfhita og loftræsingar. K16 annast einnig endurgerð og frágang lóðar.
K16 er aðalverktaki og annast alla framkvæmd verksins. Við efnisval eru gerðar kröfur um Svansvottuð efni eða efni sem samþykkt eru til notkunar í Svansvottuðum byggingum. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í ágúst eða september 2026.
Helstu upplýsingar:
Stærð byggingar: 474 m²
Byggingarár: 1980
Áætluð verklok: ágúst–september 2026
Hönnuður: Gláma Kím arkitektar



