Birkimelur 6-6B

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2022

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Birkimelur 6–6b er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með kjallara og rishæð sem byggt var árið 1948 af Byggingarfélagi símamanna. Húsið er dæmigert fyrir vandaða steinsteypta fjölbýlishúsabyggð í Vesturbæ Reykjavíkur frá síðari hluta fjórða áratugarins.

Verkið fólst í heildstæðum utanhússviðgerðum, þar á meðal endurnýjun glugga og hurða, endurnýjun þakjárns og þakglugga, múr- og steypuviðgerðum, endurmúrhúðun og steiningu útveggja, málun gluggakarma, viðgerðum á steinsteyptri þakrennu ásamt háþrýstiþvotti á útveggjum og uppsetningu vinnupalla og allrar nauðsynlegrar aðstöðu.

Helstu magntölur:

  • Endurmúrhúðun og steining veggja og lofta: 1.305 m²
  • Endurnýjun glugga og hurða: 122 stk.
  • Endurnýjun þakjárns: 650 m²
  • Endurnýjun þakglugga: 17 stk.
  • Háþrýstiþvottur útveggja: 1.415 m²
  • Endurmúrhúðun og steining veggja og lofta: 1.305 m²