Fornhagi 11-17

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2022

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Fornhagi 11–17 er steinsteypt fjölbýlishús í Vesturbæ Reykjavíkur, byggt árið 1957. Húsið var teiknað af Ágústi Steingrímssyni, byggingafræðingi, en upprunalegar teikningar eru frá árinu 1954. Byggingin var reist af Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna ríkisstofnana

Verkið fólst í umfangsmiklum utanhússviðgerðum á fjölbýlishúsinu. Helstu verkþættir voru endurnýjun glugga, endurnýjun þakjárns, múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, endursteining útveggja, málun glugga og þaks ásamt uppsetningu vinnupalla og vinnuaðstöðu.

Helstu magntölur:

  • Endurmálun þakjárns: 216 m²
  • Endurnýjun glugga: 126 stk
  • Endurnýjun þakjárns: 680 m²
  • Háþrýstiþvottur útveggja: 2.595 m²
  • Endursteining útveggja: 795 m²
  • Endurmálun gluggakarma: 1.692
  • Endurmálun þakjárns: 216m²