Háaleitisbraut 38-42 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með hálfniðurgröfnum kjallara sem byggt var árið 1964. Húsið var hannað af Bárði Daníelssyni arkitekt. Húsið er steinsteypt með pússuðum útveggjum, ísteyptum timburgluggum og bárujárnsklæddu þaki.
Verkið fólst í heildstæðum utanhússviðgerðum, þar á meðal endurnýjun glugga og hurða, endurnýjun gluggagrinda undir sameignargluggum, múr- og steypuviðgerðum á útveggjum, svölum og steyptum flötum, viðgerðum á sprungum og steypuskemmdum, sílan og yfirborðsmeðferð steinflata, háþrýstiþvotti, málun útveggja, gluggakarma og þakjárns.
Helstu magntölur:
- Endurmálun gluggakarma, gluggapósta og hurðarkarma: 1.534 m
- Endurnýjun glugga og hurða: 107 stk.
- Filtun svala, tappa og annarra láréttra flata: 207 m²
- Háþrýstiþvottur útveggja: 1.992 m²
- Endurmálun veggja og lofta: 1.992 m²
- Endurmálun þakjárns: 682 m²








