Kaplaskjólsvegur 27-31

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2023

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Kaplaskjólsvegur 27–31 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús sem byggt var árið 1965. Útveggir eru sléttpússaðir og málaðir, austurgafl er klæddur trapizuklæðningu, svalahandrið eru úr steinsteypu og járni, gluggar eru trégluggar og þak er klætt bárujárni.

Verkið fólst í umfangsmiklu ytra viðhaldi hússins, þar á meðal endurnýjun hluta glugga, múr- og steypuviðgerðum, yfirborðsviðgerðum og málun útveggja, gluggakarma og þaks. Jafnframt fól framkvæmdin í sér endurnýjun hellulagnar og kantsteins framan við húsið, endurnýjun hluta utanklæðningar á austurhlið hússins.

Helstu magntölur:

  • Endurnýjun glugga – 110 stk.
  • Endurmálun veggja og lofta – 1.686 m²
  • Endurmálun gluggakarma o.fl. – 2.312 m
  • Endurmálun þakjárns – 752 m²
  • Endurnýjun hellulagnar – 145 m²
  • Endurnýjun kantsteins – 54 m