Laugarnesvegur 88-90

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2022

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Laugarnesvegur 88–90 er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús sem byggt var árið 1958. Húsið er steinsteypt með steinuðum útveggjum, steinsteyptum svölum og skrauthandriðum. Gluggar eru hefðbundnir ísteyptir timburgluggar og þakið er uppstólað yfir steinsteyptri plötu með máluðu bárujárni.

Framkvæmdin fólst í umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaverkum á ytra byrði hússins. Verkið fól meðal annars í sér endurnýjun glugga og sameignarhurða, múr- og steypuviðgerðir, niðurbrot og endursteypu svalagólfa, svalaveggja og skrauthandriða, endursteiningu útveggja, háþrýstiþvott, málun veggja og glugga ásamt endurmálun bárujárnsþaks. Jafnframt var verkið unnið með fullri uppsetningu vinnupalla, öryggisbúnaðar og nauðsynlegs frágangs.

Helstu magntölur (Leið 1 – allt húsið):

  • Endurnýjun glugga og hurða: 34 stk.
  • Niðurbrot og endursteypa svalagólfa: 55 m²
  • Niðurbrot og endursteypa svalaveggja: 73 m²
  • Endursteypa skrauthandriða: 12 stk.
  • Endursteining útveggja: 574 m²
  • Háþrýstiþvottur útveggja: 547 m²
  • Endurmálun bárujárnsþaks: 321 m²