K16 annast endurnýjun og stækkun deildarinnar Lundar á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Verkið felur í sér umfangsmiklar breytingar á núverandi húsnæði og byggingu nýrrar viðbyggingar sem tengist starfandi hjúkrunarheimili.
K16 er aðalverktaki og annast meðal annars niðurrif, jarðvinnu, uppbyggingu nýrra burðarvirkja, lagnir, raflagnir, loftræsingu og tengingu við sprinklerkerfi, ásamt fullnaðarfrágangi innan- og utanhúss. Framkvæmdirnar fara fram samhliða fullri starfsemi á hjúkrunarheimilinu og krefjast náinnar samhæfingar við stjórnendur og starfsfólk heimilisins.
Helstu upplýsingar:
Rif á þaki: um 405 m²
Rif útveggja: um 119 m²
Nýtt þak: um 451 m²
Steinsteypa: um 46 m³
Stálvirki: um 6 tonn
Verkkaupi: Vigdísarholt ehf.
Verkefnisstjórn: JTV ehf.



