Njálsgata 59

Staðsetning

Reykjavík

Ár

2025

hlutverk

Aðalverktaki

Verkkaupi

Húsfélagið

Staða

Lokið

Njálsgata 59 er fimm hæða steinsteypt fjölbýlishús í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt Mannvirkjaskrá var byggingu hússins lokið árið 1960. Húsið er múrhúðað og málað, austurgafl er klæddur múrkerfi, gluggar eru hefðbundnir ísteyptir trégluggar og þakið er einhalla bárujárnsþak.

Verkið fólst í umfangsmiklum viðhaldsframkvæmdum á þaki, suðurhlið (götuhlið) og austurgafli hússins. Framkvæmdirnar fólu meðal annars í sér endurnýjun hluta glugga, endurnýjun þaks með nýjum þakpappa og tilheyrandi flasningum, endurnýjun einangrunar í þakrými, múrviðgerðir, filtun og málun útveggja ásamt viðgerðum á múrkerfi austurgafls.

Jafnframt var skorsteinn fjarlægður og lofttúða sett í stað hans, ný stálhandrið smíðuð og sett upp á franskar svalir auk annarra nauðsynlegra viðhalds- og frágangsverka.

Helstu magntölur:

  • Endurnýjun glugga: 20 stk.
  • Alhreinsun, filtun og málun útveggja: 150m²
  • Þvottur og málun múrkerfis: 276m²
  • Rif og förgun þakklæðningar: 208m²
  • Niðurlögn þakpappa með flasningum: 208m²
  • Einangrun á þakflöt: 208m²
  • Smíði og uppsetning stálhandriða: 6 stk.