Safamýri 46–50 er staðsteypt, múrhúðað og málað fjölbýlishús, byggt á árunum 1963–1965. Húsið er fjórar hæðir auk kjallara og skiptist í þrjú stigahús með samtals 27 íbúðum. Á lóðinni eru einnig 17 staðsteyptir bílskúrar.
Framkvæmdin fólst í endurnýjun glugga á vesturhlið hússins ásamt umfangsmiklum steypuviðgerðum og blettmálun. Unnið var að viðgerðum á sprungum, ryðskemmdum, köntum, vatnsbrettum og svalagólfum, auk sílanböðunar og málunar viðgerðra flata.
Helstu magntölur:
- Endurnýjun glugga 66 stk
- Háþrýstiþvottur og alhreinsun veggflata. 250 m2
- Sílanböðun og málun: 250m2
Steypuviðgerðir og málun á 17 bílskúrum.
