Snorrabraut 48 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með kjallara, byggt árið 1939. Húsið er dæmigert fyrir steinsteypta íbúðabyggð frá síðari hluta fjórða áratugarins, með steinuðum útveggjum, steinsteyptum svölum og timburgluggum. Arkitekt hússins var Sigurður Guðmundsson arkitekt, sem hannaði fjölmargar íbúðarbyggingar í Reykjavík á þessum tíma.
Framkvæmdin fólst í umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaverkum á ytra byrði hússins. Verkið fól meðal annars í sér endurnýjun timburglugga, múr- og steypuviðgerðir á útveggjum og svölum, viðgerðir á sprungum, köntum og vatnsbrettum, endursteypu svala, endursteiningu útveggja, málun þakkants, endurnýjun niðurfallsröra, jarðvinnu og endursteypu kjallaratrappa ásamt stoðveggjum. Jafnframt var verkið unnið með fullri uppsetningu vinnupalla, öryggisbúnaðar og nauðsynlegs frágangs.
Helstu magntölur:
- Endurnýjun glugga: 14 stk.
- Endursteypa svalaplötu: 6 m²
- Endursteypa svalaveggja: 7 m²
- Endursteining útveggja: 163 m²
- Jarðvinna og endursteypa kjallaratrappa með stoðveggjum: 16 m³
