K16 annast umfangsmikla endurgerð leikskólans Hlíð – Sólhlíð við Engihlíð 6–8 í Reykjavík. Húsið var byggt árið 1952, upphaflega sem íbúðarhús, en var síðar breytt í leikskóla. Að framkvæmdum loknum verður byggingin samtals um 734 m², þar af um 30 m² ný viðbygging fyrir lyftuhús.
Verkið felur í sér alhliða endurbyggingu húsnæðisins. K16 annast meðal annars niðurrif og steypubrot, sögun og endursteypu hluta steyptra platna, styrkingu burðarvirkja og endurnýjun þaks. Jafnframt er nýtt lyftuhús reist, útveggir lagfærðir, einangraðir og múrklæddir og lagnir, rafkerfi og loftræsing endurnýjuð.
Húsnæðið er endurskipulagt og fullfrágengið að innan til að mæta nútímakröfum um leikskólastarf og bæta aðgengi. Að framkvæmdum loknum verður þar aðstaða fyrir 75 börn og um 20 starfsmenn.
Helstu upplýsingar:
- Heildarstærð byggingar: um 734 m²
- Ný viðbygging fyrir lyftuhús: um 30 m²
- Fjöldi hæða: 2 auk kjallara og riss
- Fjöldi leikskólaplássa: 75
- Áætlaður fjöldi starfsmanna: 20
- Verkkaupi: Reykjavíkurborg
- Hlutverk K16: Aðalverktaki
- Áætluð verklok: 1. apríl 2027
- Hönnuður: Noland Arkitektar

